25.06.2008 00:17:35 / ninuz
jæja nú er skvísan komin með myspace. Hef bara verið á fullu að vinna og þess vegna haft mjög lítinn tíma til að blogga.
Fór í afmælið hjá frænku minni um helgina og guð hvað ég skemmti mér vel. Það var komið svona um hálf sjö og var strax tekinn upp bjór og byrjað að drekka. Svona um hálf níu var svo grillað. mmm fékk mér sko svínakjöt og grillaðar kartöflur.
Svo var víst kominn tími á drykkjuleik sem að fór þannig að ég þurti að drekka tvöfall svo mín var orðin ansi hress þegar honum lauk. Svo var bara drukkið meira og sungið í karíókí, spilað borðtennis og fótboltaspil.
Kvöldið endaði með að liðið fór í flöskustút og var farið inn í herbergi um hálf sjö um morguninn. En þetta var svo gaman og það var sko drepist þegar komið var heim. Vorum sko uppgefnar við frænkurnar.
En þakka fyrir geggjað djamm

Nínuz
»
06.05.2008 12:33:19 / ninuz
Já nú er kéllan bara í sumarfríi. Er nebbla hætt í vinnunni og fæ borgað mai mánuð í sumarfrí. Fór í gær á nokkrar stofur til að sækja um vinnu. Gékk svona misvel þar sem ekki er alltaf tekið vel á móti manni en fékk nokkur jákvæð svör. Fæ svör annaðhvort í vikunni eða í næstu viku. Jei krossleggjum fingurnar.
Keypti nýjar felgur á föstudaginn og það er svo mikill munur. Hinar voru orðnar vel úrelltar. Svo kéllan er komin á sumardekkin og fer að verða tilbúin fyrir bíladaga.
Er búin að ákveða næsta tattoo og skélli því á mig á næstu dögum vonandi, ætla að hringja og panta tíma í dag.
þangað til næst.
Nínuz
»
22.04.2008 11:44:55 / ninuz
Nú þarf maður að fara að leita að íbúð. AFTUR. er ekki alveg að fíla það þar sem maður er eiginlega nýfuttur hingað. úff alltaf er maður jafn heppinn. Það kom víst eitthvað upp hjá eigandanum og hann þarf íbúðina fyrir sjálfan sig.
Svo nú er maður á fullu á leigulistanum og á netinu að finna eitthvað nýtt. og guð hvað það er erfitt. Ég vona bara að það verði ekki eins erfitt og síðast. Tók okkur um 2 mánuði síðast.
Wish me luck
Nínuz
»
21.04.2008 10:16:34 / ninuz
Já mín þurfti nú endilega að lenda í flensunni eina ferðina enn. Byrjaði með smá hálsbólgu á laugardagskvöldið en vaknaði í gærmorgun með bullandi hita og stíflað nef. Gaman gaman.
Fór í afmæli hjá Sibbu frænku á föstudaginn og skemmti mér bara rosalega vel þrátt fyrir að þurfa að fara snemma heim vegna skólans á laugardagsmorgni. Laugardagurinn var mjög langur fannst mér. vaknaði kl 7 og var í skólanum til hálf 11 og vinna svo til 3. var orðin vel þreytt þegar ég kom loksins heim. Lagðist upp í sófa og draps það í svona 2 tíma eða svo. ákvað svo bara að vera róleg heima því eins gott miðað við að maður er orðin lasin.
en svona hljómaði bara helgin hjá minni.
þangað til næst.
Nínuz
»
28.03.2008 10:06:38 / ninuz
Já Lalli gamli er farinn. Hann fór í nótt. sofnaði og hætti svo að anda um kl 3 í nótt.
Svona er þetta. Lífið er víst ekki endalaust.

Benni hringdi í mig fyrir 9 í morgun til að tilkynna mér þetta. Er að fara í atvinnuviðtal og vona að ég að þetta gangi vel.
Hvíl í friði elsku Lalli minn.

Þangað til seinna
Nínuz
»
25.03.2008 21:08:09 / ninuz
Já Páskarnir voru þeir erfiðustu sem að ég hef lent í. Fyrir utan að vera mestmegnis á spítalanum á Blönduósi hjá Lalla gamla þá voru veikindi og eitt feitasta djamm í langann tíma.
Fyrst veiktist Teddi og fékk magapest, missti af ballinu og allt. Svo veiktist mamma og fékk flensu svo að hún missti af páskamessunni. Og á endanum veiktist greyið Bjössi og fékk ælupest á páskadag og varaði það alveg yfir nóttina. Og tilkynnti hann manni að súkkulaði og epli myndu ekki vera á matseðlinum hans á næstunni þar sem að hann var nýbúinn að borða páskaegg og epli um daginn.
Ég hinsvegar slapp alveg og djammaði af mér lappirnar á laugardaginn svo að ég þurfti að fara í strigaskónum í messu á Páskadagsmorgun eftir klukkutíma svefn. Ballið var rosalega skemmtilegt og hitti ég Óla Frey og Ara Gauta báðir að sunnan. Byrjað var á partýi heima hjá Runa og voru Elín, Danni, Valdi, Halla, Bryndís, Helgi Sveinbjörn, Runi Signý og Guðmann þarna. Þakka fyrir æðislegt djamm enda var maður vel þreyttur daginn eftir. alveg fram að því þegar maður fór að sofa á páskadagskvöld.
Byrjaði ekki að borða páskaegg fyrr en í gær. rosa léleg eikkað í þessu. Lögðum ekki af stað suður fyrr en um hálf 9. var sko ekki að nenna að keyra suður en þegar maður var kominn af stað þá var þetta ekkert mál.
Elín sæta. þurfum að djamma saman í bænum við tækifæri. erum sko góðar saman.
Kveðja úr hólunum
Nínuz
»
11.03.2008 21:36:23 / ninuz
já páskarnir eru að fara að koma. Fór í klippingu á föstudaginn og lét sko breyta mér vel. Er komin með stuttann topp og rauðar strýpur öðrum megin. Var eiginlega bara kominn tími til að gera eikkað annað. Er alltaf eins einhvernveginn.
Ætla að skélla mér norður um páskana og liggja upp í sófa horfa á sjónvarpið og háma í mig páskaegg. til hvers eru páskarnir annars.
Fer á ball daginn fyrir páskadag eins og síðustu ár. Djamma af mér allt vit og vakna svo eldsnemma á páskadagsmorgun til að þenja raddböndin. Svo leggst maður undir teppi og drepst svona fram yfir hádegi. mmm gerist ekki betra.
en heyri í ykkur seinna.
Stórir Knúsar
Nínuz
»
15.02.2008 22:45:00 / ninuz
jæja nú er mín komin í strangt aðhald. Fór í kringluna að versla síðustu helgi og ætlaði varla að passa í helminginn af því sem að ég mátaði. Ekki sniðugt. Er búin að vinna eins og mófó og gera það gott í meistaraskólanum. Þetta er allt að koma. verð orðin meistari áður en ég veit af.
En nýjustu fréttirnar eru það að það hefur fjölgað í spóáhólum 8. Hér hefur komið lítill dverghamstur að nafni Beckham. Tek skýrt fram að TEDDI valdi nafnið. Svo kom lítil dvergkanína sem var skýrt Yrja. Harpa og Sindri eiga hana.
Allir eru voða Happý hérna eins og venjulega.

Heyrumst seinna
»
01.02.2008 23:59:13 / ninuz
Það að vera með flensu er ekki skemmtilegt. vaknaði í gærmorgun með dúndrandi höfuðverk og mikla hálsbólgu. og gat ekki andað. svo mikið var nebbalingurinn minn stíflaður. hehe segi svona. Fór í vinnuna samt sem áður en gafst upp um hádegi og afbókaði afganginn af deginum og fór heim undir sæng.
skalf eins og ég veit ekki hvað undir sænginni inn í stofu. ákvað að slá til um hvernig ég yrði í morgun en hringdi um 9 til að láta vita að ég kæmi ekki svo að ég gæti látið mér batna fyrir morgundaginn þar sem að við skvísurnar í vinnunni erum að fara á Hótel Glym og skemmta okkur allann morgundaginn fram á sunnudag. það verður ekkert smá gaman. Er orðin skárri en er enn þá rosalega kvefuð. hef mig hæga í drykkjunni á morgun. hehe sjáum til.
Læt ykkur vita hvernig fer á Hótel Glym.
later.
Nínuz
»
09.01.2008 19:30:54 / ninuz
Já kéllan sagði sko yfirmanninum til syndanna og sagði upp vinnunni í dag. Eftir að ég komst að því að hún hafði verið að ljúga upp á mína. Var soldið stressuð á meðan á því stóð en var samt rosalega yfirveguð á meðan ég talaði við hana enda hefði ekki verið sniðugt að hækka róminn. Þegar ég var búin að koma mínu frá mér þá gat hún varla horft framan í mig hvað þá talað við mig.
En hvað sem því líður þá byrjaði ég meistaranáminu í dag. Stærðfræði var fyrsti tíminn og fer ég í eitthvað sem að heitir Bókhald og skjalavarsla. Er líka í stjórnun og rekstrarumhverfi svo það verður sko mikið að gera hjá minni.
Læt þetta nægja í bili.
chau Nínuz
»
05.01.2008 15:22:40 / ninuz
Jæja nú byrjar hversdagsleikinn á ný. Vinnan er byrjuð aftur á fullu og mín er búin að skrá sig í meistaraskólann. fjúff. fjórir dagar vikunnar í kvöldskóla og á öllum laugardagsmorgnum. Mikið að gera? ójá. en það verður sko þess virði. því eftir ekki nema eitt ár þá verð ég orðin meistari. úúú hljómar vel. hehe.
Jólin voru hreint út sagt æðisleg. Mömmumatur, jólamyndir með bróður mínum, hreint út sagt lúxuslíf. tók áramótin sko með trompi á blönduós city eins og við var að búast. byrjaði að svolgra í mig bjór heima á Melabraut um 10 gat ekki drukkið fyrr þar sem ég var svo södd eftir matinn að ég kom varla meiru niður. hámað var í sig snakk og drukkin bjór með áramótaskaupinu súem var sko ekki eins og ég bjóst við. það var nokkrir hlutir sem maður gat hlegið af en anaras var þetta bara frekar hallærislegt. held að ég hafi ekki verið sú eina sem að fannst það.
jæja ætla í kolaportið.
later.
Nínuz
»
14.12.2007 20:29:10 / ninuz
Ohh fór í Laufarbrauðsgerð síðustu helgi og vá hvað það var gaman. Hef sko ekki farið í 2 eða 3 ár. Hef þurft að vinna hverja helgi síðustu árin. Loksins var kominn tími til að maður verði í fríi nokkrar helgar.
Við fórum norður á föstudeginum og var enginn snjór á leiðinni. það var snjór í reykjavík og snjór á Blönduósi en enginn snjór né hálka á leiðinni sem var svo sem gott. Fengum að éta þegar komið var heim til mömmu og svo var eiginlega bara farið fljótlega að sofa til að vera hress í laufarbrauðinu.
Við vorum vakin um ellefu á laugardeginum og drifið sig í Hvamm því Rannveig var byrjuð að fletja út. við drifum í því að svolgra í okkur ávaxtagraut svo hægt væri að byrja að skera í. Það var svo gaman og jólafílingurinn var geggjaður. vorum alveg til kvöldmats að skera út og steikja. mmm smakkið var ekkert smá gott. hlakka til að narta í þetta um jólin.
Á sunnudeginum var skellt sér í aðventumessu. söng og allt. geggjaðu dugleg. Það var líka gaman þar sem að ég hef misst af því líka svona síðustu 3 árin eða svo. Það tók okkur líka soldið langann tíma að koma okkur af stað suður. var sko ekki að nenna að fara aftur suður. en þar sem að það er vika þangað til að ég kemst í jólafrí þá var það kannski ekki svo löng bið.
ætla að fara að pakka inn jólagjöfum,
later
Nínuz
»
02.12.2007 17:30:32 / ninuz
Já farið var á djammið í gær. Við byrjuðum að drekka hérna heima
svona eins og vanalega enda er allt út í tómum flöskum og dósum
eftir gærkvöldi.
Við fórum niðrí bæ svona um eitt leitið og var byrjað
að fara á glaumbar og dansað soldið þar og fengið sér nokkur skot
til að koma sér í gírinn. Eftir að búið var að dansa í
smá tíma og við komnar með ógeð á tónlistinni þá var skéllt sér á
Hressó. Þar var sko líf enda allt troðfullt. Á hressó hitti ég
hann Kobba minn. ekkert smá gaman að sjá hann eftir allann þennann
tíma. Gunnar var þarna líka og hann Ásgeir minn. Hitti ég líka Kai
vin minn sem ég hef ekki séð í háa herrans tíð. Ekki má gleyma
turtildúfunum mínum þeim Elínu og Oddi sem að trúlofuðu sig í gær.
Til hamingju elskurnar mínar.
Vil Þakka Hörpu, Lilju og Sindra fyrir gott djamm í gær.
Kveð í bili
Nínuz
»
30.11.2007 22:06:43 / ninuz
jæja loksins getur maður farið að slaka á og gera tilbúið fyrir jólin. Við erum flutt í hólana. Komin með stóra og fallega íbúð sem hægt er að skreyta fullt. hehe soldið jólabarn í mér.
En já talandi um aðra sálma. er búin að vera soldið löt upp á síðkastið að blogga. er að fara á djammið á morgun. hehe old news.
hef verið bara að flytja alla vikuna og ekkert nennt á djammið síðustu helgi. en er farin í pool og blogga meira eftir djammið.
chao Nínuz
»
13.11.2007 01:19:02 / ninuz
já mín lét sjá sig á starfsmannadjammi hjá Paradís. það var byrjað á paradís að drekka og háma í okkur snakk og drekka hvítvín og kampavín. vorum við nú orðnar ágætar áður en haldið var á Caruso, enda kvartað undan okkur vegna mikils hávaða. Tek skýrt fram að ég átti sko engann þátt í því.
Eftir góðann mat og meira áfengi var haldið niðrá Apótekið. var hellt í sig skoti og dansað og dansað eins og við fengjum borgað fyrir það. En fljótlega lét ég mig hverfa á hressó til hennar Hörpu minnar þar sem að við lenntum í að fá bjór yfir okkur en græddum fríann drykk í staðinn. Takk fyrir það Gunnar minn. hann var góður.
Kíkt var svo á Viktor þar sem Sibba frænka hélt sig. var drukkið meira þangað til að við stóðum vart í lappirnar. þar var dansað líka alveg þangað til að ljósin voru kveikt og við rekin út. héldum á glaumbar í svona 5 til 10 mín þangað til að rekið var á eftir okkur út. Mín var komin heim rúmlega 6 alveg mjög vel í því. Spurjiði bara Tedda hann var vakandi hehe.
En ég svaf nú ekki mikið í gær og horfði á santa clause myndirnar allar 3. enda hafði ég ekki orku til þess að standa upp úr sófanum.
Þakka fyrir geggjað djamm stelpur mínar.
love Nínuz
»
Síður:
1 2 3 4